Landvakt
Fréttir af Íslandi
Erlent

100. þakkargjörðarskrúðganga Macy's

100. þakkargjörðarskrúðganga Macy's var gengin í New York í Bandaríkjunum í dag. Skrúðgöngunni var frestað á fimmtudag vegna veðurs, í fyrsta skipti í sögu hennar.

Árleg þakkargjörðarskrúðganga var gengin í New York í Bandaríkjunum í dag. Þakkargjörðarhátíðin var reyndar á fimmtudag en þá gekk mikið óveður yfir borgina. Skrúðgöngunni var frestað til dagsins í dag.

Þetta er í fyrsta skipti í hundrað ára sögu hennar sem skrúðgöngunni hefur verið frestað. Hún var fyrst gengin 1924 en á seinni stríðsárunum féll hún niður vegna síðari heimsstyrjaldarinnar. Í ár voru hundrað blöðrur og uppblásanlegir hlutir í göngunni, meira en nokkru sinni. Veðurguðirnir voru blíðari í dag og fjöldi gesta fylgdist með.

Lesa frumfrétt hjá RÚV