Landvakt
Fréttir af Íslandi
Erlent

Eisenkot þiggur boð Netanjahús um stjórnarmyndun

Gadi Eisenkot ætlar að ræða við Benjamín Netanjahú og fulltrúa flokks hans, Likud, næsta sólarhringinn um að mynda nýja ríkisstjórn í Ísrael. Netanjahú bauð Eisenkot fyrr í dag að skiptast á að gegna embætti forsætisráðherra.

Gadi Eisenkot, leiðtogi Yashar-flokksins í Ísrael, hefur þegið boð Benjamíns Netanjahús, starfandi forsætisráðherra, um stjórnarmyndunarviðræður. Netanjahú stakk upp á því fyrr í dag að þeir myndu skiptast á að gegna embætti forsætisráðherra á næsta kjörtímabili.

Eisenkot er einn helsti andstæðingur Netanjahús og leiðtogi stjórnarandstöðunnar. Hann hlaut stjórnarmyndunarumboðið eftir þingkosningar í haust og hefur frest til 6. desember til að mynda stjórn.

Stjórnarmyndun hefur gengið brösulega í Ísrael síðan kosið var. Likud-flokkur Netanjahús og bandalagsflokkar hans misstu meirihluta sinn á þingi, en Eisenkot og hans blokk náðu hins vegar ekki heldur meirihluta og þyrftu að reiða sig á stuðning flokka ísraelskra araba til að tryggja sér meirihluta á þinginu Knesset.

Samkvæmt tillögu Netanjahús fengi Eisenkot að byrja, en fyrri hluta kjörtímabilsins yrði Netanjahú varaforsætisráðherra.

Eisenkot þáði boðið síðdegis.

„Ef Likud-flokkurinn er tilbúinn til raunverulegs samstarfs er ég reiðbúinn til að kanna næstu 24 klukkustundirnar hversu alvarlega hann meinar það,“ sagði Gadi í yfirlýsingu.

Lesa frumfrétt hjá RÚV