Landvakt
Fréttir af Íslandi
Landið · Vesturland

Mál gegn leikskólastarfsmanni á Akranesi fellt niður

Mál leikskólastarfsmanns sem grunaður er um kynferðisbrot gegn barni hefur verið fellt niður en ákvörðunin hefur verið kærð.

Mál þar sem leikskólastarfsmaður á Akranesi er grunaður um kynferðisbrot gegn barni hefur verið fellt niður. Ákvörðun ákærenda um að fella niður málið hefur verið kærð.

Þetta hefur Vísir eftir Karli Inga Vilbertssyni varahéraðssaksóknara.

Lögreglan á Vesturlandi handtók karlmann, sem var starfsmaður leikskólans Garðasels á Akranesi, þann 17. mars vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni á leikskólanum. Maðurinn hafði hafið störf á Garðaseli mánuði fyrr og starfaði meðal annars á deild með þriggja ára börnum.

Þegar lögregluembætti vísar máli til héraðssaksóknara er það til marks um að rökstuddur grunur sé um brot.

Lesa frumfrétt hjá RÚV