Jólatré Sigga hjúkku og Sóleyjar lýsir upp Ráðhústorgið á aðventunni
Starfsmenn áhaldahúss Fjallabyggðar og Bás koma jólatrénu úr garði Sigga hjúkku og Sóleyjar fyrir á Ráðhústorginu á Siglufirði.
Jólatréð á Ráðhústorginu á Siglufirði var reist miðvikudaginn 25. nóvember. Tréð er um tíu metra hátt og kemur úr garði Sóleyjar Reynisdóttur og Sigurðar Jóhannessonar, sem flestir þekkja sem Sigga hjúkku.
Starfsmenn áhaldahúss Fjallabyggðar og Bás sáu um að koma trénu fyrir á torginu.
Tréð gæti verið allt að 49 ára
Trölli.is spurði Sigga hvort þau hjónin myndu hversu lengi tréð hefði staðið í garðinum. Hann sagði að byggingarár hússins gæfi vísbendingu um aldur þess.
„Tréð var farið að skyggja allverulega á sumarsólina hjá nágrönnunum. Byggingarár hússins okkar er 1977 þannig að tréð gæti þá verið allt að 49 ára,“
sagði Siggi og sendi Trölla.is til gamans mynd af árhringjum trésins.
Ljósin tendruð á fyrsta sunnudegi í aðventu
Ljósin á jólatrénu verða tendruð klukkan 16 á morgun, sunnudaginn 29. nóvember, á fyrsta sunnudegi í aðventu. Jólasveinar koma við á Ráðhústorginu og þar verður sungið í tilefni dagsins.
Myndbrot frá uppsetningu jólatrésins
Myndir og myndbrot: Smári / Trolli.is
Aðventu- og jóladagskrá Fjallabyggðar
Nánar má lesa um það sem er á döfinni í Fjallabyggð á aðventunni og um jólin í fréttinni hér að neðan:
Fjölbreytt aðventu- og jóladagskrá í Fjallabyggð