Landvakt
Fréttir af Íslandi
Landið · Suðurnes

Krefjandi akstursskilyrði á Reykjanesbraut

Lögreglan á Suðurnesjum biðlar til vegfarenda að aka varlega og halda góðu bili á milli bíla þar sem slydda og krapi eru á vegunum.

„Akstur um Reykjanesbraut, sem og aðra vegi, getur verið nokkuð krefjandi við þær aðstæður sem nú eru uppi. Slydda og krapi á akbrautum geta valdið því að bifreiðar leita í fyrirliggjandi hjólför fremur en að fylgja þeirri akstursstefnu sem ökumaður ætlar sér,“ segir í færslu lögreglunnar á Suðurnesjum á Facebook.

„Höldum góðu bili á milli ökutækja og hægjum á okkur. Munum að ökuhraða skal ávallt miða við aðstæður.“

Eitthvað var um hálku á höfuðborgarsvæðinu í morgun eftir snjókomu í nótt. Líkur eru á frekari snjókomu síðdegis og ef svo færi gæti hún valdið vandræðum, að sögn veðurfræðings. Óveðri er spáð á Norðvesturlandi og var gulri viðvörun breytt í appelsínugula fyrir skömmu.

Lesa frumfrétt hjá Vísir