Landvakt
Fréttir af Íslandi
Núna

JoJo Siwa segir skilið við Love Island-stjörnuna

Bandaríska söngkonan JoJo Siwa og breska raunveruleikastjarnan Chris Hughes eru farin hvort í sína áttina.

„JoJo er mjög sár. Hún elskaði hann og gaf honum allt sem hún gat til þess að sambandið gæti gengið upp,“ er haft eftir vini Siwa í umfjöllun People.

„Mánuðum saman, á bak við luktar dyr, hefur hún vonast eftir því að hlutir myndu breytast. En á endanum áttaði hún sig á því að hún ætti skilið að vera frjáls og elskuð eins og hún vildi að honum liði.“

Siwa og Huges kynntust í byrjun árs 2025 þegar þau voru bæði í raunveruleikaseríunni Celebrity Big Brother UK. Þau urðu þar strax nánir vinir og síðar þróaðist vináttan í ástarsamband.

Jojo var í sambandi með áströlsku skvísunni Kath Ebbs þegar hún kynntist Hughes en þær hættu saman meðan á tökum stóð.

Um ellefu ára aldursmunur er á milli Siwa og Hughes, hún fædd 2003 en hann 1992.

„Það var ekki auðvelt að ganga burt,“ heldur heimildarmaður People áfram. „Og þetta þýðir ekki að henni þyki ekki lengur vænt um hann. Hún vissi bara að hún þyrfti að vera hún sjálf. Hún óskar honum í alvörunni alls hins besta.“

Siwa er hvað þekktust sem TikTok-stjarna og söngkona en rétt fyrir þar sem hún naut mikilla vinsælda, sérstaklega meðal barna. Hún steig þó fyrst inn í sviðsljósið árið 2015 í raunveruleikaþáttunum Dance Moms og hefur vakið mikla athygli fyrir líflega og litríka framkomu sína.

Hughes var keppandi í breska Love Island árið 2017 og komst þar í úrslit. Hann hefur síðan þá tekið þátt í fjölda raunveruleikaþátta. Hann hefur verið mikill ötull talsmaður vitundarvakningar um eistnakrabbamein og lét skima sig fyrir slíku í beinni útsendingu á This Morning árið 2018. Í kjölfar þess að bróðir hans greindist með krabbamein í eistunum gerði BBC heimildarmynd um bræðurna er nefndist „Ég, bróðir minn og eistun okkar“.

Lesa frumfrétt hjá Vísir