Landvakt
Fréttir af Íslandi
Erlent

Jarðskjálfti af stærðinni 5,0 í Los Angeles

Nokkuð var um skemmdir og slökkvilið Los Angeles er á viðbúnaðarstigi. Starfsfólk frá meira en 100 slökkviliðsstöðum fer nú um og kannar ástand mikilvægra innviða. Ekki hefur verið tilkynnt um slys á fólki.

Jarðskjálfti af stærðinni 5 á Richter-skalanum gekk yfir Suður-Kaliforníu í dag. Skjálftinn kom af stað viðvörunarkerfum fjölda bíla, rúður brotnuðu og reykur steig upp af olíuhreinsunarstöð þegar sjálfvirk öryggiskerfi fóru í gang.

Þá þurfti farþegaflugvél sem var við það að lenda á flugvelli borgarinnar að hætta við. Það er gert öryggisins vegna, ef sprungur skyldu hafa myndast á flugbrautinni.

Slökkvilið Los Angeles er á viðbúnaðarstigi og starfsfólk frá meira en 100 slökkviliðsstöðum fer nú um og kannar ástand mikilvægra innviða. Engar fregnir hafa þó borist af alvarlegum slysum á fólki eða víðtækum skemmdum.

Íbúar í Los Angeles voru beðnir um að vera búnir undir það að eftirskjálftar gætu fylgt á eftir þeim fyrsta. Margir skjálftar fylgdu í kjölfarið, þar á meðal einn af stærðinni fjórir komma sex sem reið yfir um tveimur tímum á eftir fyrsta skjálftanum.

Taka jafnan lítið eftir skjálftum

Jarðskjálftar eru ekki ósjaldgæfir í Kaliforníu en þeir eru jafnan litlir og fólk verður almennt lítið vart við þá. Svæðið í kringum Los Angeles, þar sem meira en 18 milljónir manns búa, hefur þó orðið fyrir öflugum jarðskjálftum.

Árið 1994 reið jarðskjálfti yfir Northridge á Los Angeles-svæðinu sem mældist 6,7 á Richter. 57 manns létust af völdum skjálftans, þúsundir slösuðust og tjón á heimilum og innviðum hljóp á milljörðum dollara.

Lesa frumfrétt hjá RÚV