Læknar án landamæra segja Ísraelsher hafa vitað af staðsetningu heilsugæslu
Samtökin Læknar án landamæra segjast hafa látið Ísraelsher vita af staðsetningu heilsugæslu samtakanna í Gazaborg áður en herinn gerði loftárás á hana. Tveir starfsmenn samtakanna létust.
Tveir starfsmenn hjálparsamtakanna Lækna án landamæra voru drepnir í loftárás Ísraelshers á heilsugæslu samtakanna í Gazaborg. Samtökin segja herinn hafa vitað af staðsetningu heilsugæslunnar fyrir árásina.
Óvopnaðir og klæddir í einkennisbúning samtakanna
Sjónarvottar sem BBC talaði við sögðu tvo menn hafa setið við innganginn að heilsugæslunni þegar ísraelskur dróni hafi flogið að innganginum og skotið eldflaug.
Myndskeið frá vettvangi sýnir lítinn gíg sem myndaðist eftir árásina við hlið plaststóls með blóðblettum.
Ísraelsher sagði í yfirlýsingu eftir árásina að þessir menn sem létust hafi verið „Hamas-liðar sem störfuðu sem öryggisverðir á heilsugæslustöð sem samtökin Læknar án landamæra reka.“
Í yfirlýsingunni var tekið fram að árásinni hefði ekki verið beint að heilsugæslunni og að engir innviðir þar hefðu skemmst.
Ahmad Abu Haseira er ættingi annars mannanna.
„Árásin var réttlætt með því að mennirnir hafi verið taldir ógn við Ísraelsher og öryggi Ísraelsríkis, fullyrðing sem á sér enga stoð í raunveruleikanum.“
Haseira sagði mennina báða hafa verið óvopnaða og að þeir hafi verið klæddir í einkennisbúninga samtakanna þegar árásin hafi verið gerð.
17 starfsmenn Lækna án landamæra verið drepnir á Gaza
Læknar án landamæra sögðu í yfirlýsingu að mennirnir hefðu verið öryggisverðir fyrir samtökin. Starfsfólk væri slegið sorg og reiði.
Samtökin taka einnig fram í yfirlýsingunni að heilsugæslan hafi verið kirfilega merkt „og við vorum búin að láta herinn vita af staðsetningu hennar, hann var upplýstur um staðsetninguna.“
17 starfsmenn samtakanna hafi verið drepnir á Gaza.
Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, WHO, sagði í færslu á samfélagsmiðlinum X að þeir sem hætti lífi sínu til að bjarga öðrum eigi að njóta verndar, ekki verða fyrir árásum.