Landvakt
Fréttir af Íslandi
Núna

Stöndum við með þeim sem koma okkur til hjálpar?

Nokkrir skipverjar af Jökli ÞH höfðu fest sig saman í sjónum. Þeir höfðu neyðartalstöð hjá sér. Starfsfólk Landhelgisgæslunnar heyrði í þeim og gat sagt þeim að hjálp væri á leiðinni. Þrír sjómenn fórust þegar Jökull sökk um sextíu sjómílur austur af landinu 25. nóvember 2026. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar bjargaði fjórtán félögum þeirra.

Á bak við þessi fáu orð í talstöðinni stóð fjöldi fólks. Að mati Helga Freys Ólafssonar skipstjóra liðu sjö eða átta mínútur frá útkalli þar til björgunarskipið Hafbjörg lagði af stað frá Neskaupstað. Fimm sjálfboðaliðar voru um borð og útkallið tók um hálfan sólarhring. Áhafnir nærliggjandi fiskiskipa og eftirlitsflugvélarinnar TF-SIF komu líka til hjálpar. Á Egilsstöðum hlupu á meðan barnfóstrur milli húsa svo foreldrar kæmust á heilsugæsluna til að taka á móti skipbrotsmönnunum.

„Við náðum að manna læknis- og hjúkrunarfræðingsteymi á hvern sjúkling,“ sagði Fanney Vigfúsdóttir yfirlæknir. Það er ástæða til að staldra við orðið „við“. Um fjörutíu manns komu til starfa á heilsugæslunni. Í þessu litla orði rúmast líka þau sem gættu barnanna heima á meðan.

Skipverjarnir sem náðu sambandi við Gæsluna vissu að hjálp var á leiðinni. Áhöfn þyrlunnar vissi að engin önnur þyrla var tiltæk henni til bjargar. Samt ákvað hún að fljúga lengra frá landi en reglur Landhelgisgæslunnar heimiluðu við þær aðstæður. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra kallaði björgunina með réttu afrek og hefur heitið því að ljúka fjármögnun fjórðu þyrlunnar á kjörtímabilinu. Sú áhöfn sem fer næst á haf út á að geta treyst því að önnur geti komið henni til bjargar ef á þarf að halda.

Til þess þarf að halda í reynda flugmenn. Á sama hátt þarf heilsugæslan að halda í lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða sem saman geta tekið á móti skipbrotsfólki þegar þyrlan lendir. Við þekkjum rökin fyrir því að góð laun þurfi til að halda í sérþekkingu. Þau heyrast gjarnan þegar laun í fjármálageiranum ber á góma. Sjaldnar spyrjum við hvort ákvarðanir bankanna beri alltaf vott um þá góðu dómgreind sem launin eiga að endurspegla.

Það er mikið í húfi þegar farið er með fjármuni annarra. Í bankahruninu 2008 lauk Geir H. Haarde ávarpi sínu til þjóðarinnar með orðunum „Guð blessi Ísland.“ Árið 2023 voru skilaboð fjármála- og efnahagsráðuneytisins öllu jarðbundnari. Íslandsbanki hafði fallist á að greiða 1,16 milljarða króna sekt vegna brota við sölu á hlut ríkisins í bankanum. Sektin segir lítið um störf einstakra verðbréfaráðgjafa. En ef ábyrgð á fjármunum vegur þungt þegar laun eru ákveðin, hvernig metum við þá ábyrgð hjúkrunarfræðingsins á Egilsstöðum sem tekur við manni sem hefur legið klukkustundum saman í köldum sjó? Sú ábyrgð fæst víst á hagstæðari kjörum.

Það sem við þurfum að gera upp við okkur er í hverju við viljum fjárfesta sem samfélag. Hversu miklu erum við tilbúin að verja til að halda í fólkið sem við treystum fyrir lífi okkar?

Um leið og hjúkrunarfræðingar leggja niður störf er enginn í vafa um hvað er í húfi. Árið 2015 batt Alþingi enda á verkfall þeirra með lögum. Þegar sjúkraflutningamenn á heilbrigðisstofnunum samþykktu nýjan samning við ríkið í apríl 2025 var rúmt ár liðið frá því að sá fyrri rann út. Þá hafði verið boðað til verkfalls á fjórum stofnunum. Ein þeirra var Heilbrigðisstofnun Austurlands. Nú þökkum við starfsfólkinu þar fyrir móttökurnar á Egilsstöðum. Stóðum við jafn þétt við bakið á sjúkraflutningafólkinu þegar það þurfti að boða verkfall?

Samanlagður hagnaður samstæðna Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankans nam 95,8 milljörðum króna árið 2025. Hugsum okkur fjölskyldu sem les þá frétt við eldhúsborðið. Frá hennar eigin banka berast önnur tíðindi. Fjölskyldan tók húsnæðislán á breytilegum vöxtum og nú hækka bæði vextirnir og nokkur þjónustugjöld. Bankinn útskýrir hækkanirnar í bréfi. Við eldhúsborðið þarf samt að ákveða hvar skuli skera niður til að endar nái saman. Bankinn sýnir enga miskun. Hver hefur ekki heyrt eitthvað í líkingu við „Svona eru bara reglurnar sem við vinnum eftir“, nú eða „Þetta er bara business. Þú getur þá talað við einhvern annan banka“?

Viku síðar gerir vonskuveður. Þakið yfir þessu sama eldhúsborði er við það að fjúka. Nú liggur björgunarsveitarfólk á þakinu í rokinu og reynir að festa þakplöturnar. Fjölskyldan niðri vill halda heimilinu sínu heilu. Og bankinn? Hann á veð í húsinu. Með því að bjarga þakinu vernda sjálfboðaliðarnir líka verðmætin sem bankinn lánaði út á.

Hvað þarf til að Hafbjörg geti lagt úr höfn fáeinum mínútum eftir útkall? Áhöfnin þarf að hafa æft saman og réttur búnaður að vera til taks. Fólkið þarf að vera tilbúið að rjúka af stað hvenær sem er, hvernig sem viðrar. Björgunarsveitarfólk gefur vinnu sína þegar kallið kemur og ver líka frítíma sínum í að afla fjár fyrir næsta útkall. Flugeldasalan um áramót er stærsta fjáröflun björgunarsveitanna. Björgunarsveitin Ársæll fær til dæmis megnið af rekstrarfé ársins á þessum fáu söludögum.

Fyrirtæki með tilskilin leyfi geta líka selt flugelda. Hvernig réttlætum við að keppa við sjálfboðaliðana um rekstrarféð í desember þegar við treystum á að þeir komi okkur til hjálpar í janúar?

Hagnaður bankanna sést í ársreikningum þeirra. Tölurnar segja þó ekkert um hvað það þýddi fyrir fjölskylduna að geta sofið heima hjá sér þegar veðrinu slotaði.

Næst þegar heilbrigðisstarfsfólk og viðbragðsaðilar krefjast hærri grunnlauna skulum við taka undir þá kröfu. Mannsæmandi laun eiga að vera sjálfsögð. Ég vil að störf heilbrigðisstarfsfólks og viðbragðsaðila séu í hópi best launuðu starfanna. Þegar fjárlögin liggja fyrir skulum við spyrja ráðamenn hvort fé hafi verið tryggt til að manna öll þessi störf og sjá fólkinu fyrir þeim búnaði sem það þarf. Og við sem kaupum flugelda um áramótin getum valið að kaupa þá af björgunarsveitinni sem fer út í hvaða veðri sem er þegar við þurfum á hjálp þeirra að halda.

Skipverjarnir í sjónum gátu treyst á fólkið sem svaraði neyðarkallinu. Getur þetta sama fólk treyst á okkur.

Höfundur er framkvæmdastjóri hugbúnaðarsviðs.

Heimildir

Björgunin og þyrluviðbúnaður

Landhelgisgæslan — björgun skipverjanna af Jökli ÞH

RÚV — talstöðvarsamband, ákvörðun þyrluáhafnarinnar og fjórða þyrlan

Áhöfn Hafbjargar — útkallið í Neskaupstað

RÚV — móttakan á Egilsstöðum

Bankamálin

Ávarp Geirs H. Haarde til þjóðarinnar, 6. október 2008

Fjármála- og efnahagsráðuneytið — yfirlýsing um sátt Íslandsbanka

Ársreikningar samstæðna 2025 — Arion banki · Íslandsbanki · Landsbankinn

Kjör og kjaradeilur

Alþingi — lög nr. 31/2015 um kjaramál

Félagsdómur — mál nr. 2/2025 um verkfallsboðun sjúkraflutningamanna

LSS — „Kjarasamningur LSS og SNR samþykktur“, 14. apríl 2025

Björgunarsveitir og flugeldasala

RÚV — flugeldasala björgunarsveitanna

Björgunarsveitin Ársæll — fjáröflun sveitarinnar

Ísland.is — leyfi fyrir smásölu flugelda

Lesa frumfrétt hjá Vísir