Siglufjarðarvegi verður lokað klukkan 21:30 í kvöld
Siglufjarðarvegi verður lokað klukkan 21:30 í kvöld, laugardaginn 28. nóvember, vegna óveðurs. Hálftíma síðar, klukkan 22:00, verður vegum um Vatnsskarð, Öxnadalsheiði og Þverárfjall lokað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunni á Norðurlandi vestra þar sem greint er frá fyrirhuguðum lokunum Vegagerðarinnar.
Í uppfærslu klukkan 14:23 ítrekaði lögreglan tilmæli sín um að fólk frestaði ferðum þar til veðrið gengi niður. Lögreglan sagði Veðurstofu Íslands hafa lýst sérstökum áhyggjum af aðstæðum í Skagafirði og bað fólk að hafa það í huga.
„Ekkert ferðaveður verður á meðan óveðrið gengur yfir,“
segir í tilkynningu lögreglunnar.
Vindhviður geta farið yfir 40 metra á sekúndu
Appelsínugul veðurviðvörun tekur gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 22:30 í kvöld og gildir til klukkan 05:00 í fyrramálið samkvæmt nýjustu upplýsingum Veðurstofu Íslands. Spáð er sunnanstormi eða roki og geta vindhviður farið yfir 40 metra á sekúndu, einkum austantil á svæðinu. Á fjallvegum má búast við hríð, slæmu skyggni og versnandi færð. Veðurstofa Íslands
Lögreglan hvetur fólk til að festa lausamuni áður en hvessir og fylgjast með uppfærðum upplýsingum á veður.is og umferdin.is