Núna
Stjörnuleikar HaukaSO á Ásvöllum á morgun – meistaraflokksleikmenn spila með
Í tilefni af körfuboltaviku Special Olympics í Evrópu blæs körfuknattleiksdeild Hauka til glæsilegrar körfuboltaveislu á Ásvöllum á morgun, sunnudaginn 29. nóvember, þegar Stjörnuleikar HaukaSO fara fram milli klukkan 13:00 og 16:00.
Um er að ræða svokallaða Unified-leiki þar sem iðkendur HaukaSO leika hlið við hlið með meistaraflokksleikmönnum karla og kvenna frá bæði Haukum og Stjörnunni.
Aðgangseyrir er 500 krónur fyrir fullorðna en frítt er fyrir börn, og rennur allur ágóði af bæði miðasölu og sjoppunni beint í ferðasjóð HaukaSO. Aðstandendur hvetja alla körfuboltaáhugamenn til að fjölmenna í stúkuna og styðja við bakið á leikmönnum.
Nánari upplýsingar um dagskrána má finna á viðburðarsíðu Stjörnuleikanna á Facebook.