Landvakt
Fréttir af Íslandi
Landið · Höfuðborgarsvæðið

Aðventustemning í Kópavogi

Líf og fjör var á Aðventuhátíð Kópavogs í dag. Bæjarstjóri tendraði jólatré bæjarins og slegið var upp jólaballi með jólasveinum sem munu hafa tekið forskot á sæluna og kíkt snemma til byggða.

Frá þessu er greint í tilkynningu frá bænum.

Í menningarhúsum Kópavogs var boðið upp á tónleika, jólaverkstæði, dans og heitt kakó. Í Salnum var opnuð sýning á jólaljósaverkum barna í Vatnsendaskóla og í Náttúrustofu Kópavogs var opnuð sýning á steinasafni Sigga.

Þá voru voru tónleikar á Gerðarsafni og á bókasafni bæjarfélagsins og smiðjur fyrir unga sem aldna.

Útiskemmtun hófst svo klukkan upp úr klukkan 16 með tónlistarflutningi Skólahljómsveitar Kópavogs og svo stigu Þorri og Þura á svið og stýrðu dagskránni.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs tendraði svo á jólatré bæjarins með dyggri aðstoð gesta sem töldu niður.

Loks var slegið upp jólaballi með jólasveinum sem kíktu í heimsókn.

Lesa frumfrétt hjá Vísir