Landvakt
Fréttir af Íslandi
Erlent

Abbas segir óbeint að Hamas séu hryðjuverkasamtök

Ísraelskir fjölmiðlar hafa túlkað orð Mansours Abbas, leiðtoga arabaflokksins Raam, í nýlegu viðtali sem viðurkenningu hans á því að Hamas séu hryðjuverkasamtök. Arabaflokkarnir tvöfölduðu nærri því fylgi sitt í kosningunum í Ísrael.

Mansour Abbas, leiðtogi arabaflokksins Ra'am í Ísrael, hefur viðurkennt óbeint að Hamas flokkist sem hryðjuverkasamtök. Þetta staðfesti Abbas óbeint í samtali við blaðamann ísraelsku sjónvarpsstöðvarinnar Stöð 12.

Slík viðurkenning gæti rutt brautina fyrir stjórnarmyndunarviðræður á milli arabaflokka og stjórnarandstöðuflokkar Gadi Eisenkots. Í kosningunum sem fram fóru í Ísrael í lok október tvöfölduðu arabaflokkarnir næstum fylgi sitt og stjórnarmyndun er erfið nema með samstarfi við þá.

Nýlega bárust þó fregnir af því að Eisenkot og Benjamín Netanjahú forsætisráðherra hefðu ákveðið að láta á það reyna að ræða mögulegt samstarf. Báðir höfðu þeir hafnað því fyrir kosningarnar að starfa með arabaflokkunum en stór ásteytingarsteinn, að minnsta kosti hvað Eisenkot varðar, hefur verið að arabaflokkarnir neita að tala gegn Hamas.

Skilgreint í frumvarpi sem Ra'am kom að

Í viðtali við ísraelsku sjónvarpsstöðina Stöð tólf ræddi spyrill við Abbas um frumvarp sem flokkur hans kom að því að leggja fram. Í frumvarpinu er gert ráð fyrir skipun óháðrar rannsóknarnefndar sem á að rannsaka öryggisbresti sem urðu til þess að Hamas gat ráðist inn í suðurhluta Ísraels 7. október 2023. Í frumvarpinu er Hamas lýst sem hryðjuverkasamtökum.

„Þetta er frumvarp sem þú hefur undirritað,“ segir spyrillinn, bendir á textabrot í frumvarpinu á tölvuskjá og biður Abbas um að lesa það upp.

„... hryðjuverkasamtök, og þar fremst í flokki Hamas,“ les Abbas.

„Og hvað þýðir það? Að frumvarp sem þú hefur undirritað …“ byrjar spyrillinn.

„... skilgreinir Hamas sem hryðjuverkasamtök,“ botnar þá Abbas.

Í ísraelskum fjölmiðlum hefur þetta verið túlkað sem viðurkenning af hálfu Abbas.

Spurður í viðtalinu hvers vegna hann hafi beðið svo lengi með að skilgreina Hamas með þessum hætti útskýrir Abbas að málið snerti arabískt samfélag í Ísrael, samskipti við palestínsku þjóðina og hvernig litið sé á átökin.

„Auk þess viljum við tryggja að [pólitískir andstæðingar] noti þetta ekki sem yfirvarp til að hefja allsherjarstríð gegn hverju einasta palestínsku barni, hverri palestínskri konu og allri palestínsku þjóðinni,“ bætir hann við.

Abbas áréttaði jafnframt að Ra'am-flokkurinn væri enn þá opinn fyrir því að taka þátt í stjórnarmyndunarviðræðum undir forystu Eisenkots.

Lesa frumfrétt hjá RÚV