Ökumenn Benz á ráspól á morgun
Ökumenn Mercedes Benz muna ræsa fremstir í Formúlu 1 kappakstrinum í Katar á morgun en George Russell skaut heimsmeistaranum og liðsfélaga sínum Kimi Antonelli ref fyrir rass í tímatökunum í kvöld.
Anotelli tryggði sér heimsmeistaratitil ökumanna þann 1. nóvember og varð þar með yngsti heimsmeistarinn í sögunni.
Lið Mercedes hefur haft töluverða yfirburði á þessu tímabili og er með 666 stig í keppni framleiðenda, heilum 149 stigum á undan Ferrari sem eru í öðru sæti.
Fljótustu tíu:
1. George Russell (Mercedes) - 1:21.695
2. Kimi Antonelli (Mercedes) +0.128
3. Lando Norris (McLaren) +0.480
4. Oscar Piastri (McLaren) +0.550
5. Isack Hadjar (Red Bull) +0.596
6. Max Verstappen (Red Bull) +0.637
7. Charles Leclerc (Ferrari) +1.260
8. Arvid Lindblad (Racing Bulls) +1.337
9. Lewis Hamilton (Ferrari) +1.413
10. Liam Lawson (Racing Bulls) +1.439
Keppnin í Katar á morgun verður að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Sýn Sport Viaplay og hefst útsending klukkan 15:30.