Núna
Slæmt gengi United lækkar bjórverð í Fossvoginum
Þungt gengi Manchester United þessa dagana hefur áhrif víða um heim, þar á meðal á bjórverð í Fossvoginum.
Auðunn Blöndal, annar eigandi veitingastaðarins Fossins í Grímsbæ, tilkynnti í dag breytingar á tilboði á bjór, sem hingað til hefur hangið saman við þær mínútur sem Manchester United hefur verið yfir í sínum leikjum, en þær mínútur eru fáar í vetur.
Auðunn er landsþekktur stuðningsmaður United en gengi liðsins hefur ekki veitt honum mikla gleði, frekar en öðrum stuðningsmönnum þess þennan veturinn. Spurning hvort það breytist eitthvað á næstunni en United sækir Newcastle heim 2. desember og tekur svo á móti nýliðum Coventry þremur dögum seinna.